Ármenningar Blogga
Heimasíður hjá krökkum í ármanni
01.03.2007 14:23:30 / thorey

ÆFINGARBÚÐIR LOKSINS!!

Allir vita af æfingarbúðunum er hæggi!!?? JÚ jú að sjálfsögðu enda ætla flestir að mæta að mér heyrist. Lágmarksþáttaka verður að vera 15 svo við getum farið. Farið verður 10. og 11. mars á Laugarvatn og þar verður æft stíft en einnig verður eitthvað glens og gaman í bland með (það er notla nauðsynlegt því með allri alvöru verður að fylgja eitthvað gaman;). Mun senda á ykkur og birta hér dagskrána þegar hún verður fullkláruð og tékklista fyrir ferðina

 See U á eftir kiddós!!

Þórey


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 16:30:08 / thorey

Búningamátun Taka 2

Jebb það verður aftur búningamátun eftir æfingu á þriðjudaginn svo allir þeir sem ekki gátu pantað síðast og nýjir iðkendur geta þá lagt inn pöntun:D.

Gaman að sjá að einhver hefur tekið sig til og sett inn heimasíður hjá krökkunum endilega bætið inn fleirum ef þið vitið um fleiri :haha:. Gerum þessa síðu svoldið öfluga og skemmtilega!

Ég segi svo bara góða helgi og vona að þið séuð að fara að gera eitthvað MEGA skemmtilegt!

Kveðja

Þórey semerrosafeginaðverakominíhelgarfrí!


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 04:39:58 / thorey

My ndir og Úrslit

Jæja gott fólk, mótið heppnaðist bara með eindæmum vel og bara góða mæting eða yfir 30 hausar frá okkar flokki:D. Ég er búin að setja inn úrslitin hérna inn á síðuna okkar og einnig myndir sem ég tók í gær. Það er svo æfing að venju á þriðjudaginn kl 16:30 og hver veit nema við gerum skemmtilegt á þeirri æfingu svona til að verðlauna okkur fyrir góða frammistöðu á mótinu. ;)

Stórmót ÍR jan´07 007

Þórey


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 18:57:06 / thorey

STÓRMÓT ÍR Á NÆSTA LAUGARDAG!!

Já þetta copy/pasteaði ég af fri.is, þarna eiga að vera allar nauðsynlegar upplýsingar um mótið. Mæting er um kl 9:00 í upphitun. Endilega commentið um það hvort þið ætlið að keppa eða ekki því það eru síðustu forvör fyrir að skrá nýja keppendur eða afskrá einhverja á miðnætti á morgun.

Stórmót ÍR / 100 ára afmælismót ÍR 20.–21. janúar 2007

Frjálsíþróttadeild ÍR heldur Stórmót ÍR sem jafnframt er 100 ára afmælismót félagsins í Laugardalshöllinni helgina 20.–21. janúar n.k. Mótið er opið og verður keppt í flokkum 8 ára og yngri til öldungaflokks.

Setningarathöfn laugardaginn 20. janúar, kl. 9:45: Þátttökufélög ganga í salinn með fána sinn eða merki.

Keppnisgreinar og drög að tímaseðli laugardaginn 20. janúar 8 ára og yngri (peyjar og pæjur): 60m, 400m, langstökk og boltakast Tími: 10:00–12:30

9-10 ára (hnokkar og hnátur): 60m, 600m, hástökk og kúluvarp Tími: 10:00–13:30

11-12 ára (strákar og stelpur): 60m, 60m grindahlaup, 800m, langstökk, hástökk og kúluvarp Tími: 10:00–14:30

13-14 ára (piltar og telpur): 60m, 800m, hástökk, stangarstökk og kúluvarp Tími: 12:00–15:40 15-16 ára (

sveinar og meyjar): 60m, 800m, langstökk og kúluvarp Tími: 13:00–16:45

Karlar, konur og öldungar: 60m, 200m, 800m, 3000m, kúluvarp og langstökk Tími: 15:00–17:15 

Þátttökugjöld: 10 ára og yngri: kr. 1.000.- fyrir hvern þátttakanda 11 ára og eldri: kr. 1.500.- fyrir hvern þátttakanda. Óskað er eftir að hvert félag geri upp fyrir sína keppendur.

Verðlaun: Allir keppendur í flokki 10 ára og yngri fá þátttökuverðlaun Veittir verða verðlaunapeningar fyrir fyrstu 3 sæti öðrum flokkum.

Best er fyrir ykkur að koma með keppnisgjaldið til mín á mótinu sjálfu eða á fimmtudagsæfinguna, því miður er ekki hægt að greiða í gegnum heimabanka þar sem ÍR vill að við söfnum saman okkar keppnisgjöldum og leggijum inná þá allt í einu. Þeir sem hafa þegar greitt í gegnum heimabanka til ÍR eru beðnir um að láta mig vita:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 19:48:52 / thorey

Fyrsta æfing ársins 2007 í höfn

-Ég verð bara að segja að ég var mjög sátt við mætinguna á fyrstu æfingu ársins 2007 og hún lofar bara góðu um framhaldð:D. Þetta var ansi mikið púl og átök en ég vona að allir hafi farið sælir heim eftir góða æfingu.

-Eitthvað vorum við að viðra við ykkur krakkar í 9-11 að bæta við einni æfingu í viku og vera 3x í viku í 60 mín í senn í staðin fyrir 2x í viku 70 mín í senn. Drögin að nýrri æfingartöflu er eftirfarandi.

Mánudagar: 16:00-17:00

þriðjudagar 16:30-17:30 (eins og er nú þegar)

Föstudagar: 16:00-17:00

Endilega commentið um hvað ykkur finnst um þessi drög og hvort við eigum að láta verða af því að bæta við einni æfingu8)

-Krakkar, þið sem eruð hjá Gulla, hann kemst ekki að þjálfa kl 16:30 á næsta fimmtudag en mun mæta í hús kl 17:10 og vera þá með æfingu til 18:10

Frjálsíþróttakrakkar 049

KK

Þórey


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 21:17:10 / thorey

Comeback!

Sæl börnin góð, já það þýðir sko ekkert að sitja auðum höndum og skrifa ekki blogg sérstaklega ekki þar sem við erum orðin svo mörg og ekki veitir af upplýsingaflæðismöguleikum8). Ég var rétt í þessu að senda öllum foreldrum póst í sambandi við Stórmót ÍR og fleira. En stórmót ÍR mun fara fram þann 20-21 janúar en við þurfum aðeins að mæta þann 20. Eins og síðast mun ég skrá ALLA! í ALLAR! greinar og JÁ! þar með talið 400m og 600m og vil ég sjá alla þreita þær vegalengdir:o.(En auðvitað er hægt að hafa löglega afsökun fyrir því að keppa ekki t.d. ef amma á afmæli eða eitthvað svoleiðis:)) Fyrir 6-8 ára er í boði 60m, langstökk, boltakast og 400m og fyrir 9-11 ára er í boði 60m, kúluvarp, hástökk og 600m.:). Tímaseðillinn hefur enn ekki verið bitur á fri.is en er væntalegur á allra næstu dögum.

Við sjáumst svo hress og kát eftir gott og hressandi jólafrí næsta þriðjudag stundvíslega kl 16:30!! (eða 16:25 sem er enn betra).

Yfir og út

Þórey;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 16:00:37 / thorey

Innanfélagsmót Fjolnis á midvikudaginn kl:17:30!!!

Já ekki getum vid kvartad yfir mótaleysi thad er af nógu ad taka. En Fjolnismenn hafa ákvedid ad halda mót á naesta midvikudag kl :17:30 á Laugardalsvelli. Thví midur er thetta bara fyrir 11-14. ára en ekki orvaenta thví Goggi galvaski er á naesta leiti! Ég á ekki von á odru en ad sjá alla hressa ármenninga sem eru 11. ára á árinu -14. ára á naestkomandi midviku stundvíslega kl 17:00 í upphitun!!!

chjñ!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.05.2006 17:41:38 / thorey

ÚRSLITIN

Þá eru úrslitin komin á www.fri.is undir mótaforrit (klikkið þar á innanfélagsmót Fjölnis og Ármanns). Endilega kíkið þangað.

Sjáumst á morgun

Kv. Þórey


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 15:11:33 / thorey

Innanfélagsmóta Ármanns/Fjölnis á morgun!!

Já það er mót á morgun jibbí!!!. En bara lítið innanfélagsmót hjá Ármanni og Fjölni en það er líka gaman og gott að æfa sig á þessu móti fyrir Gogga Galvaska í júní sem er RISA mót! Þær greinar sem verða í boði eru: 60m, langstökk, kúla, 400m, 600m eða 800m. Ég hvet ykkur bara til að keppa í sem flestum greinum og ég vonast til að sjá alla í einni millivegalengd8). Verið stundvís og mætið kl. 16.30 (s.s. á venjulegum æfingartíma) niður í höll og við tökum þar upphitun saman og svo verður skráning í greinar og mótið hefst svo kl. 17:00.

Svo nú fara allir snemma í háttinn í kvöld og við...

...sjáumst á morgun!

Þórey


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 09:24:41 / thorey

Innanfélagsmót Ármanns 27. maí

Jæja þetta hefur nú verið ansi langt og gott frí! og býst ég því við að allir mæti ferskir og endurnærðir á æfingu á morgun:D

Þann 27. maí verður innanfélagsmót hjá Ármanni þar sem verður keppt í öllum helstu greinum s.s. 60m, hástökk, langstökk og kúla. Mótið er fyrir alla ármenninga 14. ára og yngri. Því miður verð ég ekki á landinu þegar þetta mót verður ennnn það verður að hafa það:!: Þið eruð öll svo dugleg og vön því að vera á mótum og fáið bara mömmu og pabba til að hjálpa ykkur að fylgjast með hvenar þið eigið að keppa.

Svo er hún Rakel okkar því miður að fara að hætta að þjálfa í bili þar sem hún er að fara útá land í sumar að vinna. Hún verður kannski með okkur á einni eða tvemur æfingum í viðbót:cry:. Það verða jafnvel einhverjar breytingar á skipulagi hópsins í kjölfarið en það verður tilkynnt betur seinna.

Sjáumst hress!, fersk! og endurnærð! á þriðjudaginn!!!

Þórey


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2006 12:50:47 / thorey

GLEÐILEGA PÁSKA

Þá erum við komin í páskafrí og verður þar af leiðandi engin æfing í dag og ekki fyrr þriðjudaginn 25. apríl en þá hittumst við hress og endurnærð eftir fríið í höllinni góðu.

Þangað til síðar, veriði hress!

Kv.

Þórey.


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 16:28:45 / thorey

Bloggiddibloggblogg...

Svona fór síðasta skoðanakönnun



21 svaraði könnunni sem er mjög gott. Gaman að sjá að foreldar eru greinilega virkir í því að heimsækja síðuna. Krakkar þið megið vera duglegri og þið megið auðvitað blogga líka þannig átti þessi síða líka að vera í upphafi. Einhverjir fengu not. og pass. í byrjun en hafa sennilega gleymt því. Endilega fáið hjá mér not. og pass. ef þið hafið áhuga á að vera með í að blogga á þessari síðu:D

Sjáumst á morgun!

Þórey

ps. tékkið á nýrri könnun!:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 21:23:59 / thorey

Útihlaup á þriðjudaginn...

....já og ekkert múður;) Höllinn mun verða lokuð í næstu viku vegna einhverrar sýningar (eins og það sé mikilvægara en að stunda frjálsar íþróttir:$). Við munum hittast í andyrinu á höllinni stundvíslega kl: 16:30 og hlaupa þaðan um Laugardalinn. Þetta verður nú ekki bara púl því við munum stoppa einhversstaðar á leiðinni og fara í kýló þann langþráða leik!:haha:. Munið bara eftir því að vera vel klædd (húfur og vettlingar) því honum spáir nú ekkert sérlega heitum:|

Sí ja!

Já bara ef veðrið væri svona gott hjá okkur:)

Er einhver sem horfir á The simpsons? Tékkið þá á þessu HAHA http://www.b2.is/?sida=tengill&id=153010


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 09:37:57 / thorey

..................

Langaði bara að segja hvað ég var ánægð með pizzu/bingóhittinginn okkar í gær, það var ekkert smá góð mæting ég taldi 27 sem þýðir að við erum orðin alveg rosalega stór hópur :D Ég vona að þið hafið skemmti ykkur vel þó þið hafið farið svöng heim 8| Við munum bara aö panta meiri pizzu næst :!: En ég var algjör klaufi að gleyma myndavél kemur næst :$. Sjáumst annars á fimmtudagsæfingunni. (Langar líka að þakka Bergi fyrir hjálpina í bingóstjórnun, Bergur, þú stóðst þig vel;) )

Í bili, bless!


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 22:52:32 / thorey

i 21 - ingi 21....

Jæja tími til komin að henda einhverju inn. Á þriðjudaginn þann 7. mars ætlum við að gera okkur glaðan dag og hittast í félagsmiðstöðinni í Laugarlækjarskóla og panta okkur pítsur, fara í bingó og kúra okkur saman og horfa á vídjó, smá tilbreyting frá púlinu í höllinni;). Við hittumst kl: 17:00 og verðum til ca. 19:00. Ég vona að ég fái að sjá sem flesta.

bæjó í bili

Þórey.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3